föstudagur, ágúst 04, 2006

Flöskudagshúmor

Já Arsenal er nú að reyna að finna mann sem getur tekið við af Lehmann í markinu. Fréttir herma að hann sé nú fundinn. Eftir að hafa séð myndbrot frá þessum markmanni á Wenger víst að hafa látið félagslið hans hafa ávísun með óútfylltri upphæð. Þetta þýðir að Wenger er tilbúinn að borga hvað sem er fyrir hann og ætlar því að láta núverandi félagslið markmannsins ákveða upphæðina sjálfir og fylla út ávísunina eftir því. Wenger sagði við blaðamenn að markmaðurinn hefði nákvæmlega þá hæfileika sem hann leitaði eftir og smellpassaði inn í leikstíl liðsins. Eftir smá rannsóknarvinnu komst ég að því hvaða myndbrot hann sá af markverðinum. Hér er myndbrotið

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hehe fullkomin eftirmaður Lehman.
Þvílíkur snilldar leikur. :)

Sicknote sagði...

Já þetta er snilld. Einhventíma sagði feministi við mig að ef að kona sem stundar leiklist er kölluð "Leikkona" þá hlyti maður sem sinnir sama starfi að vera "Leikmaður". Spurnig hvort Arsenalmenn séu líka feministar?